Barnabók ársins til upplestrar í Morgunstund er myndabókin Hvem bestemmer noget? (2023) eftir danska rithöfundinn Jesper Wung-Sung sem inniheldur myndskreytingar eftir Jenny Lucander frá Finnlandi.

Markhópur: 3-6 ára.


Hvem bestemmer noget? er heimspekileg og skondin myndasaga þar sem lesendur fá að kynnast forvitnu barni og föður hans. Á göngu sinni meðfram ströndinni og í  gegnum bæinn spyr barnið föður sinn hvort það sé hann sjálfur sem stjórni öldunum í sjónum, umferðarreglunum, leikvellinum og freknunum sínum. Barnið áttar sig fljótt á því að það sé margt í lífinu sem þeir feðgar fá ekki stjórnað, en að á sama tíma sé mikilvægt að gleðjast yfir því að geta valið súkkulaðiís fram yfir aðrar bragðtegundir í ísbúðinni og að geta lokað augunum og hlustað á hafið í friði og ró þegar manni sýnist.

Forlag: Danske Gyldendal

Þetta er óopinber íslensk þýðing eftir Þórhildi Kristbjörnsdóttur.

Teksten bliver tilgængelig på hjemmesiden til brug i Nordisk Litteraturuge mellem 19. oktober - 16. november 2026.