Morgunstund börn

Barnabók ársins til upplestrar í Morgunstund er myndabókin Hvem bestemmer noget? (2023) eftir danska rithöfundinn Jesper Wung-Sung sem inniheldur myndskreytingar eftir Jenny Lucander frá Finnlandi. Markhópur: 3-6 ára.

Hvem bestemmer noget? er heimspekileg og skondin myndasaga þar sem lesendur fá að kynnast forvitnu barni og föður hans. Á göngu sinni meðfram ströndinni og í  gegnum bæinn spyr barnið föður sinn hvort það sé hann sjálfur sem stjórni öldunum í sjónum, umferðarreglunum, leikvellinum og freknunum sínum. Barnið áttar sig fljótt á því að það sé margt í lífinu sem þeir feðgar fá ekki stjórnað, en að á sama tíma sé mikilvægt að gleðjast yfir því að geta valið súkkulaðiís fram yfir aðrar bragðtegundir í ísbúðinni og að geta lokað augunum og hlustað á hafið í friði og ró þegar manni sýnist.

Forlag: Danske Gyldendal

 

Morgunstund ungmenni

Bók ársins til upplestrar í Morgunstund ungmenni, fyrir ungmenni, er finnsk-norska skáldsagan Kepler 62: Kutsu (islandsk: Kallið) (2015) eftir Timo Parvela, Bjørn Sortland og Pasi Pitkänen (myndskreytir)

Kepler62: Kallið er spennusaga fyrir ungmenni frá 9 ára aldri og er sú fyrsta í Kepler62 bókaröðinni. Íbúafjöldi jarðarinnar hefur aukist upp úr öllu valdi og auðlindir eru af skornum skammti. Leynileg samtök ákveða að senda börn og ungmenni í könnunarleiðangur á aðra plánetu í gegnum spilið Kepler62 í von um að mannkynið geti hafið þar nýtt líf. Í gegnum bókina fá lesendur að kynnast bræðrunum Ari og Joni sem reyna að ljúka spilinu til að komast í hóp þeirra sem verða sendir í svaðilförina á plánetuna Kepler62. Bókin fjallar um samstöðu og samheldni og hvernig við getum staðið þétt saman gegn sameiginlegum áskorunum.

Útdráttur: bls. 63-115

Forlag: Finske Bonnier, WSOY

 

Rökkurstund

Bók til upplestrar í Rökkurstund er sænska skáldsagan De kommer att drunkna i sine mödrars tårar (2017) eftir Johannes Anyuru.

De kommer att drunkna i sine mödrars tårar er skáldsaga sem gerist í framtíðinni og sýnir hvernig lýðræðislegt samfélag Svíþjóðar gæti þróast ef ekki er gætt að lýðræðislegum gildum. Sagan hefst á hryðjuverkaárás sem á sér stað í bókabúð þar sem umdeildur skopmyndateiknari heldur fyrirlestur. Árásin er tekin upp á myndband og streymt í kjölfarið er stelpan á bak við upptökuna lögð inn á réttargeðdeild. Hún hefur samband við rithöfund sem hún vill deila sögu sinni með. Hún segist koma frá framtíðinni þar sem samfélag Svíþjóðar er algjörlega tvístrað. Sagan hennar fær rithöfundinn til þess að hugleiða hvers konar líf við lifum og hvernig samfélag við búum í. Skáldsagan varpar ljósi á þær afleiðingar sem geta myndast út frá tillitsleysi og útilokun frá samfélagi en á sama tíma fjallar hún einnig um von, frelsi og mátt tungumálsins.

Forlag: Svenske Norstedts

 

Upplestrartextarnir eru birtir á heimasíðunni 19. október - 16. nóvember.