Verkefnið
Norræn bókmenntavika er verkefni á vegum Sambands Norrænu félaganna sem leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir á Norðurlöndunum og nágrannalöndum.
Norræna bókmenntavikan skiptist í tvo þætti: annars vegar Morgunstund - upplestur fyrir börn og hins vegar Rökkurstund - upplestur fyrir fullorðna. Undir Morgunstund fellur einnig nýr flokkur, sérstaklega ætlaður unglingum.
Skráðu skólann þinn, bókasafnið
eða stofnunina og taktu þátt einum stærsta
upplestrarviðburði Norðurlandanna! Þannig getum
við í sameiningu skapað einstakan viðburð -
þar sem norrænar bókmenntir lifna við og
öðlast líf í skammdegisrökkrinu.