Skugga-Baldur: skáldsaga - Sjón
Prófasturinn Baldur Skuggason er ein
aðalpersóna sögunnar. Önnur mikilvæg
sögupersóna sem fylgir allri sögunni er undarlegt
afkvæmi kattar og tófu og má þar skynja
séríslenska kímnigáfu höfundar.
Skugga-Baldur er stutt skáldsaga og skiptist í
fáa kafla. Á sumum síðum eru aðeins
nokkrar línur með miklu millibili sem leiða hugann
að víðáttum íslenskrar
náttúru. Efnisfastur stíllinn vegur salt
á mörkum prósa og ljóðs.
Skugga-Baldur er einnig samtíðarsaga þar sem
siðferðisleg álitamál eru tekin fyrir
Skugga-Baldur fékk bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2005. Í rökstuðningi
dómnefndar segir:
" Skugga-Baldur leikur sér á mörkum
ljóðs og prósa. Skáldsagan leitar á
mið íslenskra þjóðsagna og beitir
rómantískum frásagnarstíl í
hrífandi sögu þar sem drepið er á
siðferðislegum álitamálum
samtíðarinnar."
Sjón er höfundarnafn Sigurjóns Birgis
Sigurdssonar.
Ársins textabrot: "I (9. - 11. janúar 1883)", bls. 5-37 í íslensku útgáfunni frá 2003
Útgefandi: Bjartur