Eldgos - Rán Flygenring
Myndabókinn Eldgos fékk barna- og
unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
2023. Í rökstuðningi dómnefndar segir:
"Verðlaunahafinn í ár hefur skapað
myndabók fulla af sjónrænum sprengikrafti um
áhrifin sem villt og óhamin náttúra
hefur á fólk. Mynd og texti fléttast listilega
saman í fjöruga og sprenghlægilega sögu um
sundurleitan hóp ferðamanna við gosstöðvar.
Frásögnin iðar af lífsþrótti og
bæði fangar og skopast að hrifningu okkar á
öfgafullum náttúrufyrirbærum. En
hún dregur einnig fram hvernig mótsagnakenndar
tilfinningar vakna bæði þegar jörð
klofnar, hraun flæðir og ný fjöll verða
til og þegar við stöndum frammi fyrir
hversdagsógnum á borð við lúsafaraldur
eða sjáum nánasta umhverfi okkar yfirfyllast af
ferðamönnum. Frásögnin er þannig
þrungin spennu sem er sprottin úr samspilinu milli
hins ægistóra og hins agnarsmáa.
Myndirnar í bókinni eru sneisafullar af
forvitnilegum og fyndnum smáatriðum sem hrífa
hinn unga lesanda með sér. Er náttúran til
eingöngu okkur til skemmtunar eða ættum við
að taka meiri ábyrgð á samskiptum okkar
við hana? Eldgos kveikir von um að við getum fundið
leið til að lifa í sátt við
náttúruna."
Nú þegar Norræna bókmenntavikan varpar ljósi á 80 ára lýðveldishátíð Íslands tökum við okkur far með Kaktusi ásamt fullri rútu af ferðamönnum. Kaktus er ekki spenntur fyrir ferðinni en það á nú heldur betur eftir að breytast þegar óvæntir viðburðir gerast…..
"Afsakið, hvað kallar maður þetta" hrópar Kaktus og bendir á rauðan og glóandi blett á gráu hrauninu.